Við höfum þróað breiða línu MAPAX®-lausna sem miða að því að koma til móts við þær fjölbreyttu þarfir og kröfur um úrval sem markaðurinn með forelduð matvæli og framreiðslumatvæli stendur frammi fyrir.
Forelduð matvæli skemmast mishratt eftir því hvað þau innihalda og er munurinn umtalsverður frá einni vöru til annarrar. Dæmi um þetta er pasta með kjötfyllingu, til dæmis ravioli eða lasagna, en þá skemmist kjötið á öðrum hraða en pastað.
Hvað forelduð matvæli varðar felst stór áskorun í því að komast hjá örverumengun meðan á vinnslu stendur. Til að geta þetta þurfa framleiðendur hreinlæti af hæstu gráðu og bestu mögulegu hráefnin.
Alvarlegustu tilfelli niðurbrotsins hljótast af vexti örvera, oxun og of langri geymslu. Af þessu hlýst þránun, litabreyting og minna bragð. Ef pítsa er til dæmis látin standa undir beru lofti við 4 °C til 6 °C skemmist hún á um viku. Ef hún er hins vegar látin standa í andrúmslofti sem hefur verið rétt blandað, með litlu magni súrefnis (O2) en háum styrk koldíoxíðs (CO2), getur pítsan enst í nokkrar vikur. Hvað pítsur varðar ætti súrefnismagnið að vera minna en 1,5%.
Í pakkningum fyrir forelduð matvæli er vægið á milli CO2 og köfnunarefnis (N2) háð rakainnihaldi vörunnar. Samt sem áður er samsetning matvælanna einnig stór þáttur sem hefur áhrif á hraða örverumyndunar, oxun og virknieiginleika ensíma. Því meiri sem vatnsvirknin er, því hærri þarf styrkur CO2 að vera í pakkningunum.
Afurðir sem eru samsettar úr mörgum innihaldsefnum eru gott dæmi um þetta
Forelduð matvæli geta skemmst mjög hratt í röngu umhverfi. Þetta gildir sérstaklega um mat með hlutlaust pH-gildi. Hver foreldaður réttur felur í sér sína eigin sérstöku áskorun, þetta gildir sérstaklega um vörur úr fjölþættum og breytilegum tegundum hráefnis (eins og samlokur, fyllt pasta, salöt, pítsur og vorrúllur).
Þar sem hvert innihaldsefni hefur sína sérstöku eiginleika er þörf á djúpri þekkingu til að geta fundið út hvaða gasblanda mun best geta komið í veg fyrir ferli sem leiðir til skemmda og viðhaldið hæstu gæðum. MAPAX-lausnirnar okkar geta lagt umtalsvert fram til betra geymsluþols og til að varðveita gæði.
Verndandi loftaðstæður – MAP-blöndur – unnar kjötvörur
Vara |
Pylsur |
Sneiddar, eldaðar kjötafurðir |
MAPAX-gasblanda |
20% CO2 og |
20% CO2 og 80% N2 |
Rúmtak gass miðað við þyngd |
50–100 ml fyrir 100 g af vörunni |
50–100 ml fyrir 100 g af vörunni |
Venjulegt geymsluþol |
2–4 dagar við súrefni |
2–4 dagar við súrefni |
Venjulegt efni |
OPET/PVdC/PE-PVC/PE PA/PE |
OPET/PVdC/PE-PVC/PE |
Dæmigerð vél |
„Deep-draw“-pökkunarvél Lárétt „flow-pack“-pökkunarvél |
„Deep-draw“-pökkunarvél |
Geymsluhitastig |
+4 oC til +7 oC |
+4 oC til +7 oC |
*Verið er að skipta PVC út fyrir APET eða PS/EVOH Verið er að skipta PVdC út fyrir WVOH eða OPA |