Matvælaiðnaðurinn stendur frammi fyrir margs konar áskorunum því að neytendur krefjast aukinna gæða og fjölbreytni. Við eigum náið samstarf við viðskiptavini okkar í matvælaframleiðslu um heim allan og tryggjum þeim gaslausnir sem auka gæði vörunnar, lækka framleiðslukostnað og auka samkeppnishæfni.
Bjór, gosdrykkir og sódavatn eru hluti af daglegu lífi okkar. Gastækni hefur ævinlega gegnt lykilhlutverki í þróun og framleiðslu slíkra drykkja. Allir aðilar í drykkjarvöruiðnaði nota gastegundir, allt frá stórum átöppunarverksmiðjum til lítilla matsölustaða og vínveitingastaða.
Við bjóðum einnig upp á tæknilega aðstoð og framsæknar lausnir fyrir framleiðslu og pökkun brauðvöru og mjólkurvöru, alifuglakjöts, rauðs kjöts, sjávarfangs, ávaxta, grænmetis og unninnar vöru.
- Forvinnsla innihaldsefna – kristöllun við ofurkulda til að hraðvinna duft fyrir fljótandi fituefni sem notuð eru í brauðvörur, mjólkurvörur og við kökugerð.
- Samsetning, blöndun, færibandavinnsla og tromlun:
- Innsprautunarkerfi frá botni fyrir hraðkælingu við íblöndunar- og hræriaðgerðir, með jafnri hitadreifingu og samleitni í öllum framleiðslulotum
- Snjóhorn sem tryggja nákvæma og mjög skilvirka vinnslu vöru með takmarkað geymsluþol
- Lofttæmd tromlukerfi með koltvísýrings- og köfnunarefniskælingu stytta vinnslutímann og auka gæði vöru
- Deyfing við stýrðar loftaðstæður (Controlled atmosphere stunning, CAS) fyrir alifuglakjöt og annað kjöt
- Lausnir og vörur fyrir frystingu og kælingu matvæla á starfsstöð og við flutninga, þar með talið:
- Köfnunarefni og koldíoxíð í magnumbúðum fyrir frystingu við ofurkulda
- Mikið úrval vistvænna og hefðbundinna kælimiðla fyrir vélræna kælingu
- Frysti- og kæliskápar, hitastýringarkerfi og matvinnslubúnaður
- Heildarlausnir fyrir pökkun matvæla og drykkjarvöru, þar með talið:
- Fljótandi gastegundir og köfnunarefni, koldíoxíð, súrefni og gasblöndur á hylkjum fyrir loftskiptar umbúðir (MAP)
- Gastegundir fyrir geymslu matvæla og gasblöndur fyrir pökkun, svælingu, dauðhreinsun og meindýraeyðingu
- Lasergastegundir og búnaður fyrir dagsetningamerkingar um geymsluþol á málmdósum
- Fljótandi gastegundir fyrir drykkjarvörur og pökkunarkerfi
- Gas á hylkjum og fljótandi gastegundir fyrir drykkjarvörur, búnaður og lausnir
Við bjóðum einnig eftirfarandi vörur fyrir iðnaðarstarfsemi:
- Gastegundir og búnað fyrir logsuðu
- Súrefni fyrir vatnsmeðferð
- Gastegundir fyrir kvörðun mælitækja, – blöndur og háhreinar gastegundir
- Lasergastegundir og búnað fyrir dagsetningamerkingar um geymsluþol á málmdósum