Kælikerfi fyrir flutninga tryggja að frosin og kæld matvæli haldist við rétt hitastig á öllum stigum. Slík kerfi tryggja áreiðanleika kælikeðjunnar allt frá framleiðanda til neytanda, í samræmi við lög og reglugerðir og leiðbeinandi viðmið í greiningu hættu og mikilvægra stýristaða (Hazard Analysis Critical Control Point HACCP).
Kælikerfi með ofurkuldagasi eru einkum notuð við flutninga á afurðum úr aðalvöruhúsi heildsala til smásala eða úr veitingaeldhúsi á framreiðslustaðinn. Við notkun þeirra þarf engar rafmagnstengingar eða dísilrafstöðvar, þau eru hljóðlát og losa lítið af mengandi lofttegundum. Auk þess bjóða þau skilvirka og hraðvirka kælingu, einkum við aðstæður þar sem oft þarf að opna dyr. Þau eru einnig hönnuð fyrir mismunandi lofthitasvæði.
Við bjóðum sérsniðnar lausnir sem byggja á þremur flutningskerfum:
1.Gámakæling
Gámakæling með ýmis konar ofurkæliefnum sem kæla einangraða gáma:
- Þurrís er með hitastigið -79 °C. Kuldinn losnar úr læðingi með þurrgufun. Þurrís er sveigjanlegur, auðveldur í notkun og fáanlegur í misstórum blokkum (0,6–10 kg).
- Kæliplötur eru fylltar með sérstakri saltvatnslausn sem gefur frá sér kulda við þiðnun. Þær henta vel til að kæla ferskar (0–5 °C) og djúpfrystar (-21 °C) máltíðir og þær má nota aftur, eftir að þær hafa verið frystar í sérstökum frystitækjum.
- Þurríssnjór (SNOWCOOL®) kælir líka með þurrgufun. Þurríssnjór er framleiddur með því að veita fljótandi koldíoxíð inn í snjóhorn. Magn þess snjós sem framleitt er hverju sinni má miða við vöruna sem á að flytja.
Hentar fyrir:
- Beina afhendingu
- Mismunandi lofthitasvæði
- Mismunandi magn fyrir mismunandi lofthitasvæði
- Flutninga á marga áfangastaði eða flutninga þar sem dyr eru oft opnaðar.
2.Kæling ökutækja
Kæling ökutækja felur í sér kælingu á öllu ökutækinu. Tvö ofurkælikerfi eru einkum notuð við þetta. Annað kerfið kælir ökutækið óbeint með koldíoxíð en hitt notar köfnunarefni til að kæla ökutækið.
Hentar fyrir
- Mikið magn sem þarf að geymast við sama hitastig
- Langflutninga
- Flutninga þar sem dyr eru opnaðar sjaldnar
- Sérhæfð vörustjórnunarkerfi
3.Pakkakæling (frumgerðir og sýnishorn til flutninga)
Þurrís má einnig nota til að kæla minni flutningseiningar, svo sem pakka eða öskjur, og þá með kælipokum eða perlum. Hægt er að ákvarða þurrísmagnið nákvæmlega til að ná því hitastigi sem nauðsynlegt er fyrir flutninga á bæði djúpfrystivörum og vörum með hitastig yfir frostmarki. Pakkakæling með þurrís hentar vel til að kæla matvæli svo sem sjávarfangsafurðir, osta og eldaða kjötvöru, dýrafóður og sýnishorn í þrjá daga eða lengur (við flutninga milli heimshluta).
Þegar aðeins þarf að flytja lítið magn eða nokkur sýnishorn er þurrísinn (ICEBITZZZ®) einnig fáanlegur í pólýstýrenkössum sem sendir eru með hraðsendli (5-10 kg þurrís/pakki). Fyrir venjulegar pakkasendingar má panta þurrísinn í litlu magni samkvæmt samkomulagi.