Miklar kröfur eru gerðar til öryggis og virkni gasdreifikerfa. Til að koma í veg fyrir skaða á fólki og eignum, og til að tryggja áreiðanleika framleiðslunnar og gæði, þurfa gaskerfi að vera gallalaus.
Linde (fyrrum ÍSAGA) býður viðhaldsþjónustu sem tryggir að þú getur reitt þig á að kerfið virki rétt. Með þekkingu okkar og reynslu á gasi, sem og þekkingu á gildandi lögum og reglugerðum, hjálpum við þér að uppfylla opinberar kröfur um eftirlit og skráningu.
Viðhaldsþjónusta okkar felur í sér:
- Minni hættu á ófyrirséðri framleiðslustöðvun og aukna nýtingu í framleiðslunni
- Meiri gæði framleiðslunnar með öruggri gasdreifingu
- Aukna framleiðni með því að tryggja að þú getir einbeitt þér að þínum verkefnum.
- Gott skipulag – við setjum saman verklýsingu sem er afhent og vistuð eftir hverja viðhaldsheimsókn
- Aukið öryggi og minni hættu á slysum
- Gasdreifikerfi þínu er haldið við í samræmi við opinberar reglugerðir.