Köfnunarefni í fljótandi formi er orðið ómissandi í mörgum verkefnum í iðnaði, læknisfræði og á tilraunastofum. Það er einnig mikið notað í matvælaiðnaði.
Hins vegar þurfa margir viðskiptavinir aðeins fljótandi köfnunarefni (LIN) í litlum skömmtum. Til að mæta þörfum þessara viðskiptavina höfum við þróað sérstaka þjónustu – CRYO-þjónustu fyrir fljótandi köfnunarefni. CRYO-þjónustubifreið okkar getur komið á staðinn og fyllt á LIN-geymana þína – eins mikið magn og þú þarfnast hverju sinni.
Einfalt
Þú þarft aðeins að panta hjá okkur og við sjáum um afganginn, alveg fram að afhendingu. Hafðu samband við þjónustuverið. Við segjum þér allt sem þú þarft að vita um hvernig á að geyma og nota fljótandi köfnunarefni.
Öruggt
Öryggi á vinnustað er algjört forgangsatriði hjá Linde. Starfslið okkar fær mikla þjálfun í öllum öryggisatriðum. Við höfum útbúið sérstakan LIN-pakka fyrir þig þar sem mikil áhersla er lögð á að starfsfólk verði meðvitað um öryggi. Við getum einnig séð þér fyrir nauðsynlegum öryggisbúnaði.
Áreiðanleiki
Þú getur treyst okkur til að koma vörunni áleiðis í tíma og á réttan hátt, í hvert sinn. Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér hvenær sem er velkomið að hafa samband.
Helstu atriði CRYO-þjónustunnar með fljótandi köfnunarefni
- Umsjón með og afhending á litlum skömmtum af fljótandi köfnunarefni, í sérstökum bifreiðum sem ætlaðar eru til þess verks
- Mikið úrval af útbúnaði og fylgihlutum
- Ítarlegar ráðleggingar um það hvernig geyma skal og nota fljótandi köfnunarefni á öruggan hátt.