Álframleiðendur eru undir stöðugum þrýstingi um að auka framleiðni og afköst, draga úr kostnaði, auka gæði og efla umhverfisvitund sína.
Framsækin þjónusta okkar fyrir áliðnaðinn felur í sér allt frá gastegundum og búnaði til ráðgjafar um verkferli og aðra tengda þjónustu.Búnaður okkar er í notkun á yfir 150 vinnustöðvum og hefur aukið bræðsluhraða um allt að 100%, minnkað eldsneytisnotkun um allt að 50% og dregið úr útblæstri sem nemur allt að 90%.
Heildarlausn fyrir allt vinnuferlið
Við bjóðum sérhannaðan búnað fyrir hvert vinnsluþrep í álframleiðslukeðjunni, þróaðan til að hjálpa fyrirtæki þínu að minnka eldsneytisnotkun og auka gæðin:
- Lághitabræðslutækni með súrefni til að auka bræðsluhraðann, draga úr orkukostnaði og minnka útblástur
- Kæling álgjallstil að hindra oxun og auka afköst með því að tryggja hlutlaustandrúmsloft
- Hreinsun til að auka gæði endanlegu afurðarinnar, sem fer þannig fram að bráðin er hreinsuð með gasi til að fjarlægja vetni, innfellingar sem ekki eru úr málmi og óæskileg snefilefni.
- Hitameðferð með glóðun í verndandi köfnunarefnishjúptil að draga úr oxun og aflitun
- Kæling með strengsprautun (extrusion) og húðun með fljótandi köfnunarefni til að auka framleiðsluhraða, bæta áferð afurðarinnar og lengja líftíma pressumóta.