Fyrir afurðir sem erfitt er að vinna með, nota CRYOLINE® SC frystigöngin einnota þynnufæriband sem er einkaleyfisskráð.
Auðvelt er að frysta eða kæla vökva og/eða kryddlegnar vörur eða að öðrum kosti herða mjúkar afurðir (t.d. fiskflök eða kjúklingalundir) fyrir endanlega frystingu.
Vegna þess að færibandið er einnota er hægt að skipta um afurð í framleiðsluferlinu án þess að þrífa þurfi færibandið.
Annar kostur fram yfir möskvafæribönd er sá að þynnan er slétt, sem er fullkomið fyrir vinnslu á mjúkum matvælum og tryggir að engin för komi eftir færibandið.