Við notum própan til hitunar, eldunar, fyrir grillið, í kælingu og jafnvel til að eyða arfa eða til að hita upp út á sólpalli á síðkvöldi. Kannski ertu með kolsýrt drykkjarvatn úr krananum eða gosvél í eldhúsinu.
Í veislum og gleðskap er hægt að nota þurrís til að kæla mat eða til að gera skemmtilega drykki. Einnig hafa flest börn gaman af blöðrum og við seljum helíum sem notað er til að blása upp blöðrur.
Með því að nota gastegundir er hægt að spara tíma, gera lífið auðveldara og skemmtilegra.
Heimsóttu My.AGA.com til að finna sölustaði, leiðbeiningar og aðrar áhugaverðar upplýsingar um Linde gas og kolsýrt vatn.