Við sjáum veitingaiðnaðinum – frá stærstu hótelum til smæstu vínveitingastaða – fyrir hagkvæmum lausnum og hágæða gasvörum.
Við bjóðum:
- Skömmtun á drykkjarvöru – sérþekkingu, vörur og lausnir fyrir skömmtun drykkjarvöru af öllum stærðum og gerðum, fyrir smásala í hvaða rekstri sem er.
- Matvælagastegundir – fjölbreytt úrval þjappaðra gastegunda og gastegunda í minna magni fyrir skömmtun. Til að tryggja öryggi starfsfólks og neytenda fylgjum við ströngustu gæðastöðlum fyrir matvælaframleiðslu og öryggisreglugerðum varðandi prófanir og áfyllingar hylkja.
- Búnað – hátæknibúnað fyrir skömmtun og geymslu – með möguleikum á að uppfæra búnaðinn samfara vexti fyrirtækisins.
- Upphitun – vistvænan upphitunar- og eldunarbúnað og brennslugastegundir fyrir almenningsrými, hótel og veitingastaði og fyrir pallahitara.
Við bjóðum einnig:
- Uppsetningarþjónustu
- Öryggisleiðbeiningar á myndböndum þar sem farið er yfir notkun og geymslu á gastegundum í lokuðum rýmum.
- Koldíoxíðmæla til að verja starfsfólkið þitt fyrir svima, andnauð og köfnun.
- Blöðrugas – helíum, blöðrur, blöðruáfyllingarsett og þjónustu í tengslum við smásölu og skreytingar gegnum söluaðila okkar.
- Kælimiðla til að þjónusta loftkælingarkerfi og tryggja um leið þægindi viðskiptavinarins.
- Frysti- og kælimiðla og margs konar þjónustu fyrir gastegundir sem notaðar eru í kældum matvælageymslukerfum.
- Vatnsmeðferð – Réttir af pH-gildi í sundlaugarvatni.