Rétt verklag er nauðsynlegt til að vernda þá sem nota gas fyrir hugsanlegum skaða. Jafn mikilvægt er þó að þeir sem nota gasið skilji nákvæmlega hvað þeir eru með í höndunum. Þetta gerir þær kröfur til birgjanna að þeir séu mjög nákvæmir um allt sem snertir gæði gassins og búnaðarins sem þeir útvega.
Til að stuðla að öryggi notandans gefum við út gasvottorð fyrir allar okkar vörur. Þetta veitir notandanum öryggi því að hann veit að fram hefur farið nákvæmt gæðaeftirlit og að allt okkar gas og gasblöndur hefur fengið nákvæma greiningu.