HiQ®-merkið felur í sér bestu fáanlegu vörurnar á sviði háhreinna gastegunda, nákvæmar gasblöndur, hátæknileg gasdælikerfi og þá hágæða þjónustu sem þörf er á til að ná besta hugsanlega árangri. Við uppfyllum þínar þarfir af natni og nákvæmni. Sérhannað til að uppfylla sértækar þarfir. Afhendingarmáti og afhendingarform sem hæfir notkun hverju sinni. Þegar þig vantar sérhæfðar gastegundir þarftu aðeins að leggja eitt orð á minnið: HiQ.
HiQ-lausnir fyrir sérhæfðar gastegundir eru byggðar á þekkingu og reynslu. HiQ-lausnir leggja áherslu á sértækar gastegundir og með settum markmiðum sem ekki er vikið frá. Það sem þig vantar útvegum við og það sem þú þarft að fá að vita vitum við. Og þegar þig vantar vöruna erum við þegar mætt á staðinn. Með reynslu, þekkingu og birgðastjórnunarkerfi í handraðanum. HiQ getur því hæglega tryggt þér sálarró, jafnvel þótt slíkt geti verið erfitt að sanna með mælanlegum hætti.
Um HiQ – sérhæfðar gastegundir og sérhæfður búnaður
Það er erfitt að festa merkimiða á gas en stundum væri samt gott að geta það. Stundum vantar mann nefnilega alveg sérhæfða vöru í einhverjum mjög flóknum tilgangi og þá er gott að sjá strax hvar bestu hugsanlegu vöruna er að finna. Það er innan HiQ-kerfisins. HiQ er samheiti Linde yfir sérhæfðu gastegundirnar, búnaðinn og þjónustuna sem við bjóðum og þú getur notað það merki til að finna fljótt það sem hentar þér best. Og fá það tafarlaust þegar þú þarft þess með.
Þú pantar tilteknar, sérhæfðar gastegundir vegna þess að verkferlið þitt krefst þeirra tegunda og þú ætlast til þess að gasbirgirinn sýni engu minni nákvæmni. Og jafnvel þótt það mætti ætla að allar gastegundir með sömu tæknilýsingum væru nákvæmlega eins kemur það stundum í ljós að val þitt á birgi getur haft gríðarmikil áhrif – þegar varan sem þú keyptir stenst ekki væntingar.
Linde hefur sérhannaðar vinnslustöðvar, faggiltar greiningarrannsóknastofur, hreyfanlega greiningarþjónustu, hátæknibirgðastjórnunarkerfi og valferli, sem og veitukerfi sem eru sérhönnuð með þarfir hvers viðskiptavinar í huga. Þetta er það sem orðið „sérhæfðar“ merkir fyrir okkur þegar við tölum um „sérhæfðar gastegundir“. Grundvöllur alls þessa er samanlögð sérfræðiþekking og reynslubrunnur okkar frábæra HiQ-hóps um heim allan –sérfræðinga á sínu sviði sem hafa tiltæk hugbúnaðartól og upplýsingakerfi sem hjálpa þeim að taka upplýstar ákvarðanir hratt og fumlaust. Þegar þig vantar sérhæfðar gastegundir þarftu aðeins að leggja eitt orð á minnið:
HiQ – Nákvæmni skiptir mestu í öllu okkar starfi.
Linde HiQ gases product datasheets |