Besta leiðin til að lágmarka áhættu er oftar en ekki að ná til fólksins sem meðhöndlar og notar gas frá okkur. Við bjóðum úrval námskeiða um öryggismál til að tryggja að starfsfólk viðskiptavina okkar skilji eiginleika og einkenni mismunandi gastegunda og viti hvernig á að nota, geyma og meðhöndla þær á réttan hátt.
Þessi námskeið eru í boði sem staðlaðar einingar. Hafirðu áhyggjur af einhverjum sértækum öryggisatriðum bjóðum við einnig sérsniðin námskeið á þínum vinnustað.