Heithúðun er notuð við framleiðslu, sem og við viðgerðir og viðhald.Það reynist oft ódýrara að nota þessa aðferð við viðgerðir og viðhald en að kaupa nýja varahluti.Auk þess getur endingartími hlutarins sem gert var við lengst, sem þýðir að lengri tími líður milli þess að sinna þarf viðhaldi.
Heithúðun er safnheiti yfir nokkrar mismunandi húðunaraðferðir og ein þeirra er húðun með loga.Við húðun búnaðar er yfirborðsefnið, sem getur verið ýmist í duftformi, vírar eða pinnar, hitað að glóhitastigi eða þar til það er bráðið eða næstum því í bráðnuðu formi.Þegar efnið hefur verið hitað er malað í fíngert duft og úðað með gasstreymi á flöt vinnslustykkisins (undirlagið) þar sem það harðnar og stífnar.Yfirborðsflötinn má þá nota eins og hann er eða vinna hann frekar að réttu ummáli.
Yfirborð hluta er oftast það sem takmarkar endingartíma þeirra.Yfirborðið verður fyrir áhrifum vegna slits, tæringar og/eða mikils hita.Til eru efni og heithúðunaraðferðir fyrir svo gott sem allar gerðir yfirborðs.
Húðun með loga og réttu yfirborðsefni getur bætt verulega viðnám yfirborðs við tæringu, sliti og miklum hita.Hægt er að ná fram yfirborði með mikilli eða lítilli núningsmótstöðu eða breyta leiðni yfirborðsins.Hægt er að gera við yfirborðsskemmdir og lagfæra skemmda hluta og sníða þá til í rétta stærð.
Val á brennslugasifer eftir bráðnunarhitastigi yfirborðsefnisins og gerð úðunarbúnaðar sem notaður er.Við húðun á fjölliðum getur verið nóg að nota própan blandað þrýstilofti til að ná réttu hitastigi.Til að ná fram mjög háu hitastigi er best að nota asetýlen blandað með hreinu súrefni.
Kynnið ykkur öryggisleiðbeiningar fyrir heitar vinnuaðgerðir til að lágmarka áhættuna!