Heithúðun er notuð við framleiðslu, sem og við viðgerðir og viðhald.Það reynist oft ódýrara að nota þessa aðferð við viðgerðir og viðhald en að kaupa nýja varahluti.Oft lengist endingartími hlutarins sem gert var við og lengri tími líður milli þess að sinna þarf viðhaldi.
Heithúðun er almennt heiti yfir mismunandi húðunaraðferðir og ein þeirra er húðun með loga.Við húðun er yfirborðsefnið, sem getur verið ýmist í duftformi, vírar eða pinnar, hitað að bræðslumarki.Þegar efnið hefur verið hitað er því úðað jafnt yfir flöt vinnslustykkisins (undirlagið) með gasstreymi það harðnar síðan og herðist.Hægt er að nota húðaða yfirborðið án þess að vinna það frekar eða vinna það í rétt mál..
Yfirborð hluta er oftast það sem takmarkar endingartíma þeirra, þar sem það verður fyrir áhrifum vegna slits, tæringar og/eða mikils hita.Til eru efni og heithúðunaraðferðir fyrir svo gott sem allar gerðir yfirborðs.
Húðun með loga og réttu yfirborðsefni getur bætt verulega viðnám yfirborðs við tæringu, sliti og miklum hita.Hægt er að ná fram yfirborði með mikilli eða lítilli núningsmótstöðu eða breyta leiðni yfirborðsins.Hægt er að gera við yfirborðsskemmdir og lagfæra skemmda hluta og vinna þá í rétta stærð.
Val á brennslugasi fer eftir bræðslumarki yfirborðsefnisins og gerð úðunarbúnaðar sem notaður er.Við húðun á fjölliðum getur verið nóg að nota própan blandað þrýstilofti til að ná réttu hitastigi.Ef hitinn þarf að vera sérlega hár skal nota asetýlen blandað hreinu súrefni.