MAPAX®-kerfið okkar samþættir víðtæka þekkingu á sviði matvælavinnslu, gastækni og umbúðagerða í sérhæfðar lausnir. Ströngustu gæðakröfum er mætt með því að huga sérstaklega að eftirfarandi:
- Mismunandi gerðum og magni örvera sem geta verið til staðar í meðhöndlunar- og vinnsluferlinu
- Hreinlætiskröfum
- Biðtíma fyrir pökkun
- Hitastigi
- Eiginleikum umbúðaefnisins, t.d. gegndræpi
- Rúmtaki gass innan umbúðanna
- Samsetningu gasblöndunnar
- Styrk súrefnis
Við finnum bestu lausnirnar fyrir þig
Til að finna þá MAPAX®-lausn sem hentar þér best gerum við ýmislegt fleira en það eitt að útvega gastegundir. MAPAX®-lausnirnar byggja á víðtækri samþættingu umbúðaefnis, pökkunarvéla og gasbirgja. Þannig gerum við viðskiptavinum okkar kleift að uppfylla kröfur markaðarins um skilvirka og hagkvæma pökkun matvæla. Þetta tryggir einnig mikil og viðvarandi gæði hvar sem er í dreifingarkeðjunni, sem sýnir sig best á sölusvæði kældra matvæla.
Við eigum náið samstarf við rannsóknarstofnanir í matvælafræði í fjölda landa, t.d. SIK (Svíþjóð), VTT (Finnlandi) og Campden (Bretlandi) og erum í viðskiptum við fjölda matvælaframleiðenda um heim allan. Með náinni samvinnu við aðila matvælaiðnaðarins getum við greint og útvegað bestu hugsanlegu lofttegundirnar hverju sinni.
Meðalgeymsluþol matvæla sem geymd eru í lofti |
Meðalgeymsluþol matvæla sem geymd eru með MAPAX®-tækni |
|
Hrátt, rautt kjöt |
2 - 4 dagar |
5 - 8 dagar |
Hrátt, hvítt alifuglakjöt |
4 - 7 dagar |
16 - 21 dagur |
Hrátt, rautt alifuglakjöt |
3 - 5 dagar |
7 - 14 dagar |
Pylsur |
2 - 4 dagar |
2 - 5 vikur |
Sneitt, eldað kjöt |
2 - 4 dagar |
2 - 5 vikur |
Hrár fiskur |
2 - 3 dagar |
5 - 9 dagar |
Eldaður fiskur |
2 - 4 dagar |
3 - 4 vikur |
Fastir ostar |
2 - 3 vikur |
4 - 10 vikur |
Mjúkostar |
4 - 14 dagar |
1 - 3 vikur |
Kökur | nokkrar vikur |
allt að ár |
Brauð | nokkrir dagar |
2 vikur |
Forbakað brauð | 5 dagar |
20 dagar |
Fersk, skorin salatblanda | 2 - 5 dagar |
5 - 10 dagar |
Ferskt pasta | 1–2 vikur |
3 - 4 vikur |
Pítsur | 7 - 10 dagar |
2 - 4 vikur |
Bökur |
3 - 5 dagar |
2 - 3 vikur |
Samlokur |
2 - 3 dagar |
7 - 10 dagar |
Tilbúnar máltíðir |
2 - 5 dagar |
7 - 20 dagar |
Þurrkaður matur |
4 - 8 months |
1 - 2 years |
Venjulegt loft | Loftskipt |