Asetýlen er litlaust, laust við eiturhrif og hefur væg, svæfandi áhrif. Það er lyktarlaust þegar það er hreint, en venjulegt gas á almennum markaði inniheldur snefilmagn af óhreinindum sem gefa gasinu lykt sem minnir á hvítlauk.
Asetýlen er framleitt með því að láta karbít og vatn hvarfast saman. Þar sem asetýlen er óstöðugt við þrýsting yfir 2 börum er asetýlenhylkið fyllt með gljúpum massa sem heftir niðurbrot með skilvirkum hætti.
Asetýlen er leyst upp í vökva, yfirleitt asetoni, sem síðan massinn dregur í sig í hylkinu. Í snertingu við loft er asetýlen sprengifimt við þéttni á milli 2,2 og 85%. Þar sem asetýlen er léttara en loft streymir allur gasleki upp og þynnist við snertingu við loft, sem minnkar hættu á sprengingu.
Asetýlen myndar heitasta og þéttasta kjarnlogann af öllum brennslugastegundum í iðnaði. Varmagildi þess er tiltölulega lágt en hlutfallið sem berst út með kjarnloganum er mjög hátt, um 30%, sem þýðir að asetýlen er það brennslugas þar sem myndar hvað mestan hita. Hlutfall asetýlens/súrefnis í blöndunni er u.þ.b. 1:1,1 fyrir venjulegan loga.
Asetýlen-/þrýstiloftslogi (með miklu magni af asetýleni) er einnig notaður til að mynda sót í mót fyrir bráðið efni til að auðvelda losun og minnka viðloðun í greinum eins og gler-, járn- og stáliðnaði.
Asetýlen er mikið notað með súrefni. Dæmi um notkun eru: suða, skurður, lóðun/brösun, hitun með loga, rétting með loga, sprautun með loga, hreinsun með loga o.s.frv