Gaslasertæki þarfnast lasergastegunda til að geta myndað laserljós. Í koldíoxíðlasertæki inniheldur gasblandan 60-85% helíum, 13-55% köfnunarefni og 1-9 % koldíoxíð. Nákvæm samsetning veltur á tegund lasertækisins og framleiðandanum. Ákveðnar tegundir lasertækja þurfa einnig aðrar gastegundir í litlu magni, t.d. súrefni, vetni, xenon og kolsýrling. Eitraðar gastegundir kalla á auknar öryggisráðstafanir varðandi gasdreifikerfið.
Gasblöndur fyrir excimer-lasertæki innihalda oft 0,05-0,3% halógens (flúor- eða vetnisklóríð), 1-10% eðalgös (krypton, xenon eða argon) og 90% af stofngastegundum (helíum eða neoni). Af öryggisástæðum skal alltaf þynna halógen með helíum eða neoni.
Nútímalegt lasertæki með koldíoxíð þarf lasergastegundir með mikinn hreinleika. Ef óhreinindi eru til staðar dregur það úr getu lasergeislans, til dæmis með því að minnka afköstin og trufla rafræna losun, en slíkt eykur um leið slit á linsu lasertækisins. Í þessu tilliti eru vatnsgufa og vetniskolefni skaðlegustu óhreinindin.
Að jafnaði eru þessi óhreinindi í lasergastegundunum ekki til staðar í gashylkjunum heldur eru til komin vegna rangrar hönnunar á gasdreifikerfum. Áreiðanlegt og fullnægjandi lasertæki þarf því að setja saman af sérfræðingi, sem einnig þarf að velja einstaka íhluti þess.
Lasergastegundir fyrir lasertæki með koldíoxíð eru afhent í aðskildum gashylkjum og er blandað saman með blandara, eða sem forblandaðar gastegundir. Allar gastegundir eru innifaldar í LASERLINE-kerfinu. Í LASERMIX-kerfinu fylgja með forblandaðar lasergastegundir fyrir flest lasertæki.