Vinnslugastegundir eru notaðar við lasersuðu og yfirborðsmeðhöndlun. Suðugastegundir forða uppsafnaðri bráð frá því að komast í snertingu við loftið sem umlykur hana.
Gastegundir fyrir koldíoxíðlasersuðu
Að stjórna plasmamyndun er mikilvægur hluti lasersuðu með aflmiklum koldíoxíðlaser. Helíum og helíum-/argonblöndur eru yfirleitt notaðar í lasersuðu með koldíoxíðlasertækjum. Þar sem helíum hamlar myndun plasma er það oft notað í lasersuðu með kraftmiklum geisla. Þar sem argon framkallar mikið magn plasma ætti ekki að nota það samhliða sterkum koldíoxíðlasergeislum. Við vissar aðstæður má nota helíum-/argonblöndur með súrefni, koldíoxíð og öðrum íblendiefnum. Við lasersuðu má einnig nota LASGON®, sérstaklega hannað kerfi með sérvöldum gasblöndum fyrir mismunandi lasersuðuaðgerðir, sem annan valkost við helíum.
Argon-/vetnisblöndur tryggja mikil afköst og gæði suðunnar við suðu á ryðfríu austenítisku stáli.
Gastegundir fyrir Nd:YAG-lasersuðu
Við lasersuðu með Nd:YAG-laser er ráðlagt að nota argon sem suðugas. Helíum er sjaldan notað þar sem myndun plasma veldur ekki vanda við Nd:YAG-lasersuðu með eðlilegum laserstyrk. Þegar tekið er tillit til gæða gefur argon oft betri raun en helíum.
Gastegundir fyrir yfirborðsmeðhöndlun með laser
Í meginatriðum eru sömu gastegundir notaðar og við lasersuðu. Eðalgastegundir, t.d. argon og helíum, vernda meðhöndlaða efnið og koma í veg fyrir að andrúmsloft komist að því. Í vissum tilvikum má nota köfnunarefni sem vinnslugas, allt eftir tegund efnisins og íblendiefnisins. Argon-/köfnunarefnisblöndur eru líka notaðar við tilteknar aðferðir.