SOLVOX® A súrefnisdreifibúnaður
SOLVOX® A er afar einfaldur og ódýr lágþrýstidreifibúnaður fyrir súrefni til notkunar í saltvatni.
Í hörðu samkeppnisumhverfi er lykilatriði að halda kostnaði í lágmarki.Þótt AGA selji gastegundir leggjum við áherslu á að draga úr súrefnisnotkun fiskeldisbænda eins og kostur er.Þetta hljómar kannski þversagnakennt en ávinningurinn fyrir viðskiptavininn er augljós.
SOLVOX® A dregur einnig úr heildarþrýstingi köfnunarefnis og annarra gastegunda samfara súrefnismettunarferlinu.Þess vegna er yfirleitt engin þörf fyrir loftun á vatni þar sem SOLVOX® A búnaður er notaður.
SOLVOX® A súrefnisdreifibúnaður – sveigjanlegur, notandavænn og hagkvæmur
SOLVOX® A súrefnisdreifibúnaður er fáanlegur í nokkrum útfærslum, allt eftir þörfum viðskiptavinarins, fyrir ker með vatnsrennsli frá 75 l/mín. upp í 9000 l/mín.
SOLVOX® A er auðveldur í uppsetningu, ákaflega skilvirkur og einkar sparneytinn.SOLVOX® búnaður sem settur er upp á hefðbundinn hátt hefur þrýstingsþörf sem nemur u.þ.b. 2 metra vatnssúlu.
SOLVOX® A notaður samhliða SOLVOX® Stream
Click here to see a larger version of the image
Lýsing:
1:Inntaksrör, 2:Viðhaldsloki, 3:SOLVOX® A, 4:Stýriloki, 5:Inntaksrör á milli SOLVOX® A og SOLVOX® Stream, 6:SOLVOX® Stream, 7:Rennihólkur, 8:Vatnsflæðimælir og 9:Skömmtunarskápur
Til að ná sem allra bestum árangri mælum við með því að SOLVOX® A sé alltaf notaður samhliða SOLVOX® Stream.