Allt efni þessarar vefsíðu, svo sem texti, myndir, grafík, hljóð, hreyfimyndir og myndbönd, þ.m.t. fyrirtækismerki, vörumerki og uppsetning AGA vefsíðunnar, fellur undir vörumerkjarétt og höfundarrétt og önnur lög varðandi hugverkarétt. Dreifing, breyting eða afritun efnis þessara síðna, þ.m.t. rammar eða uppsetning er bönnuð.
Vefsíðan veitir engan leyfisrétt né annan rétt til notkunar á hugverkum sem á henni finnast, þ.m.t. vörumerkjum og höfundarrétti. Afritun, dreifing, endurframleiðsla, áframsending eða önnur notkun þessara vernduðu hugverka er ekki leyfð án skriflegs samþykkis frá AGA. Ekki má heldur afrita, dreifa, breyta eða gera aðra hluta síðunnar aðgengilega þriðja aðila. Leyfi þarf frá AGA ef nota á texta, textabrot eða sjónrænt efni.
AGA tekur sérstaklega fram að sumar myndir sem eru á síðunni eru verndaðar af höfundarrétti þriðja aðila.
Notanda vefsíðunnar er leyfilegt að gera eitt afrit af síðunni í eigin þágu, svo fremi að efni hennar sé ekki breytt á meðan á afritun stendur og öllum tilvísunum í hugverkarétt sé haldið, eða settar inn ef aðeins eru notaðir hlutar síðunnar. Efni fréttatilkynninga og annarra skjala sem eru flokkuð sem opinber má nota í almenn samskipti. Þetta á ekki við um þá hluta opinberra skjala sem falla undir vörumerkjarétt, höfundarrétt eða aðrar reglugerðir.
AGA skoðar og uppfærir upplýsingar á vefsíðunni í sífellu. Þrátt ýtrustu nákvæmni AGA, er ekki hægt að ábyrgjast að vefsíðan sé villulaus. Fyrirtækið gengst því ekki við skaðabótaskyldu og firrir sig ábyrgð á að upplýsingarnar séu uppfærðar, nákvæmar eða fullnægjandi. Hið sama á við um allar vefsíður sem farið er á með hlekkjum frá AGA síðum, hvort sem þær tilheyra hlutdeildarfélögum eða þriðja aðila. AGA ber hvorki skaðabótaskyldu vegna slíkra vefsíðna, né ber AGA ábyrgð á gagnaverndartilhögun rekenda vefsíðnanna sem um ræðir.
AGA áskilur sér rétt til að breyta eða bæta við upplýsingum eða gögnum sem um ræðir hvenær sem er og fyrirvaralaust.
AGA getur hvenær sem er lokað á aðgang að vefsíðunni. AGA ábyrgist ekki að vefsíðan verði alltaf tiltæk.
Þó að AGA beiti öllum ráðum við að halda vefsíðunni lausri við vírusa er ekki hægt að ábyrgjast að svo sé.
Til að hægt sé að svara fyrirspurnum, gætir þú verið beðin/n um persónulegar upplýsingar. Öll slík gögn eru gefin af fúsum og frjálsum vilja. Þau eru eingöngu notuð í þeim tilgangi að svara fyrirspurnum þínum og er þeim safnað, geymd, unnið með og notuð í samræmi við núgildandi reglugerðir Norðurlanda og Eystrasaltslanda um gagnavernd.