Vefkönnun AGA
Í byrjun árs 2010 opnaði AGA ný vefsvæði fyrir Norður-Evrópu. Til viðbótar við vefsvæðið www.aga.com voru staðbundin vefsvæði opnuð fyrir Danmörku, Eistland, Finnland, Lettland, Litháen, Noreg og Svíþjóð.
Nú framkvæmum við vefkönnun því við höfum áhuga á því að sjá hvernig viðskiptavinir okkar og gestir á vefsvæðum AGA hafa tekið nýju vefsvæðunum, hvort þeim finnist vefsvæðin notendavæn og á hvaða atriði við ættum, að þeirra mati, að leggja áherslu í þróunarvinnu. Álit viðskiptavina okkar skiptir okkur miklu máli og við tökum alltaf mið af því. Því eru viðskiptavinir okkar hvattir til að gefa álit sitt með því að taka þátt í vefkönnuninni á vefsvæði AGA.
Við leggjum okkur fram um að bæta okkur og uppfylla kröfur viðskiptavina eins og kostur er.
Könnunin verður í gangi til loka febrúar 2011.